Blogg
12. júní 2007 klukkan 14:32
Jæja ég er búin að taka þá ákvörðun að hætta þessu bloggbulli, ég ætla að feta í fótspor margra annarra og halda mig bara við myspaceið mitt. Ég á reyndar örugglega eftir að blogga oggu pons þar, en ekkert mikið.
Allaveganna endilega fáið ykkur myspace, þið sem hafið það ekki og kíkið á mig: myspace.com/ars4
Bæjó

Útskryftarpartý
10. júní 2007 klukkan 15:21
Það var svo geðveikt gaman í gær, það mætti svo mikið af fólki að sem betur fer var gott veður svo fólk gat einnig setið úti. Við vorum með 50 lítra af bollu og fólk var skotstund að klára hana. Aftur á móti kláraðist snakkið ekki, ég er ekki alveg sátt við það ;)
Ég og Halli vorum líka svo myndarleg og bökuðum mínípizzur fyrir partýið kvöldið áður, vorum alveg að til þrjú um nóttina, en þær slógu líka í gegn
Það er líka mjög vel heppnað partý ef fólk kvartar undan hávaða og löggan mætir til að biðja mann um að hafa lægra, það er hreinlega ekki partý nema hún láti sjá sig hehe
En oj hvað það er ógeðslegt hjá okkur, allt gólfið er klístrað og veröndin úti er ógeðsleg, það mætti halda að það hafi verið svaka partý hjá okkur
Ég nenni ekki að laga til alveg strax, ætla að liggja aðeins lengur upp í rúmi, smá þynnka hjá minni, þannig að nóg í bili og takk kærlega fyrir mig.

Tekíla
05. júní 2007 klukkan 16:47
Núna á laugardaginn fékk ég mér mitt fyrsta tekíla skot 
Það var nú mikið segi ég nú bara. Fékk mér alveg heil fjögur skot hehe
Það er ekkert smá gaman að taka þetta skot, veit ekki af hverju ég er ekki búin að fá mér svona fyrr. Þetta er samt ekkert rosalega bragðgott, eins gott að hafa saltið og lime-ið eða sítrónuna.
Það stefnir ekki í gott veður á laugardaginn fyrir partýið okkar....Það er ekki nógu gott, þið hafið ekki verið dugleg að biðja um gott veður fyrir okkur
Þetta reddast nú samt sem áður. Ætlum að fá okkur segltjald og búa til þvílíkt gott skjól fyrir roki og rigningu. Við eigum bara eftir að fá leyfi frá fólkinu sem býr á móti okkur. Þyrftum helst að láta tjaldið ná alveg yfir í næstu blokk, svo það haldist og við fáum alveg skjól :)
Annars er það bara vinna og meiri vinna. Á eftir að finna mér útskriftarföt, ég hef bara ekki hugmynd um í hverju mig langar að vera í. Veit bara að ég vil eitthvað nýtt :)
Ætla einmitt að skreppa í kringluna á fimmtudaginn, nýta það að það sé opið svona lengi:)

B.Sc búiđ :)
02. júní 2007 klukkan 10:37
Víííí loksins er ég búin að öllu. Nú er bara útskriftin eftir 
Ég og Halli erum einmitt að fara í bæinn í dag að versla fyrir partýið okkar. Síðan er eins gott að veðrið verði búið að skána, því við stefnum að því að vera með garðapartý
Maður skellti sér í smá partý í gær. Það var stjórnarskiptingarpartý í skólanum. Geðveikt gaman. Ég fór nú samt ekki niður í bæ, ég var eitthvað rosalega þreytt, við eigum líka eftir að gera fullt í dag, þannig að eins gott að hafa orku. Maður þarf samt að kíkja á djammið fljótlega í bænum og finna muninn fyrst reykingabannið er komið á
Ég hlakka svo geðveikt til að geta djammað í bænum og þurfa ekki að koma heim angandi eins og öskubakki, það verður æðislegt.

bla bla bla
28. maí 2007 klukkan 23:19
Ég er alveg að vera búin með Bs-inn. Ritgerðar skilin eru síðasta lagi á föstudaginn og ég á enn eftir að fá tvær einkunnir. Þegar þetta þrennt er komið þá er ég loks búin :)
Ég er búin að komast að því að ég er ekkert voðalega góð í skák. Ég hef ekki þolinmæðina og nenni ekki að hugsa minnsta kosti þrjú move fram í tímann, ég vil bara drífa þetta af. Mér finnst samt skemmtilegt að spila skák, maður getur orðið heppinn svona af og til og unnið;)
Ég fór í fermingu til litla frænda míns, Kolbeins Þórs, á sunnudaginn. Þau voru að byggja sér hús í Vogunum. Ekkert smá flott hjá þeim og risa risa eldhús og stofa. Þau voru hreinlega með veislusal bara heima hjá sér. Svo var líka svo gott að borða og þá tróð maður auðvitað í sig.
Á föstudaginn var rauðvínskvöld í vinnunni. Mjög skemmtilegt :) Það var víst veðmál í gangi vegna kosninganna og allir lögðu rauðvínsflösku undir og stelpan sem vann gat ekki hugsað sér að drekka 16 rauðvínsflöskur ein, þannig að hún ákvað að deila því með okkur svo lengi sem við lofuðum henni að djamm langt fram á nótt. Á endanum held ég að þau hafi bara farið fimm niður í bæ. Prófessorarnir fóru frekar snemma heim og nokkrir aðrir fóru í partý á görðunum að grilla og ég fór að hitta hana Hrafnhildi :) Við tvær skemmtum okkur vel við að horfa á ungfrú Ísland hehe. Við vissum líka strax hverjar yrðu í 1., 2. og 3. sæti. Frekar ósanngjörn keppni hvað það varðar, okkur fannst allaveganna mjög augljóst hver myndi vinna keppnina. Ég verð nú líka að segja að það er ótrúlega hallærislegt að vera á háhæluðum skóm í baðfötum, en það er ennþá hallærislegra að vera á táslunum en samt ganga á tánum eins og maður væri í háhæluðum skóm. Við gátum allaveganna hlegið að þessu :)
Síðan er maður bara að plana útskriftarpartýið og kaffiboðið fyrir fjölskylduna.
Partýið verður laugardaginn 9.maí heima hjá okkur Halla og allir eru velkomnir :)
Ég sendi sms þegar nær dregur ;)

Próf lokiđ
14. maí 2007 klukkan 09:04
Vííí öll próf búin. Vá það er svo mikill léttir. Þá var hægt að horfa á eurovision án þess að fá samviskubit. Ég var reyndar ekkert ánægð með hvernig þessi keppni fór. Ekki það að Eiríkur hafi ekki komist áfram, bara einhvern veginn missti ég áhugann á þessu, þegar maður vissi hvaða lönd myndu komast áfram.....Þetta er nú líka bara góð afsökun til þess að halda svakalegt partý:) Ég gat nú ekki haldið partý í þetta sinn, þar sem það er enn próftíð en maður var ekki lengi að finna sér stað.
Frændi minn var að gifta sig á laugardaginn. Þau eru svo rosalega sæt saman, hún gat ekki hætt að brosa og skoppa eftir að þau voru búin að segja Já. Hann reyndi að halda kúlinu en það var ekki hægt hehe.
Núna er ég að klára að hreinskrifa ritgerðina mína, eða öllu heldur fara yfir hana eftir að kennarinn er búinn að gera athugasemdir. Ég þarf líklegast að hreinskrifa hana síðan aftur, þegar hún er búin að gera lokaathugasemdirnar. Stefnan er að klára hana í vikunni, síðan ætla ég helst að byrja að vinna næsta mánudag, svo maður fái nú einhvern pening í júní.
Annars allt gott að frétta, það er bara beðið eftir einkunnum.

próftíđ
05. maí 2007 klukkan 19:53
Það er svo erfitt að vera í próftíð núna. Það er búið að spá svo góður veðri í vikunni að mig langar hreinlega ekki til þess að sitja inni að læra en það versta er að Halli var að klára prófin í dag og auðvitað fagnar maður því alltaf með smá djammi, og þá langar mig líka svo að fara á djammið, en ég verð víst að læra :(
Það er nú samt sem áður stutt í að ég klári prófin, síðasta prófið mitt er á fimmtudaginn. Ég var mjög fegin því, passar akkúrat fyrir eurovision. Frábært að geta fagnað próflokunum með eurovision partýi
En jæja best að halda áfram að læra, verð að nýta það vel fyrst maður er einn heima.

Gleđilegt sumar
19. apríl 2007 klukkan 12:24
Sumardagurinn fyrsti er alltaf góður :)
Ég hlakka svo til sumarsins, ég get varla beðið. Ég og Halli vorum að kaupa okkur miða til Rómar í sumar :)
Annars er nóg að gera í skólanum, held fyrirlestur á morgun, vísó á Raunvísindastofnun, maður verður allaveganna að kíkja og taka nokkrar myndir. Síðan eru skilin á ritgerðinni úr sérverkefninu í næstu viku og fyrsta prófið eftir 10 daga, þannig að það er nóg að gera hjá manni.

bíó og landsbankinn
08. apríl 2007 klukkan 10:34
Ég var ekkert smá ánægð þegar ég sá auglýsingu í Fréttablaðinu að ég fengi tveir fyrir einn í Smárabíó á mánudögum til fimmtudaga (fyrst ég er námufélagi), loksins tími ég að fara í bíó:)
Ég ákvað því að bjóða Halla í bíó, en þegar við komum á staðinn þá fékk ég að vita af því að ég þurfti að vera með nýtt kort, sem væri með mynd af gallabuxum.....Af hverju í ósköpunum þarf endilega að vera mynd af gallabuxum á helvítis kortinu, það stóð ekkert um þetta í auglýsingunni í fréttablaðinu. Af hverju þarf ég endilega að ná mér í nýtt kort til þess að fá tveir fyrir einn, hvað græðir bankinn á því að gefa mér nýtt kort, ég þarf ekkert að borga fyrir það, og svo er það bara vesen og tímafrekt. Af hverju þarf að vera að bögga gamla námufélaga svona grrrrrr.
En hvað um það, það eru páskar svo ég ætla að fara að borða páskaeggið mitt

Lćri lćr
28. mars 2007 klukkan 19:31
Það er svo mikið að gera þessa dagana.
Síðasta föstudag vorum við Halli og Guðný að halda alveg snilldarfyrirlestur í Líf í Alheiminum. Myndin sem sést hér að ofan var einmitt í honum. En við vorum að fjalla um KT-event, og gerðum þessa mynd að ganni
Reyndar var fyrirlesturinn svo góður að kennarinn sagði að það væri hreinlega ekki hægt að spyrja neinna spurninga eftir þetta.....
Þetta var í fyrsta skipti sem ég hélt fyrirlestur og enginn sagði neitt í honum....hehe
Við vorum hreinlega með show, myndir í bakgrunni og síðan rúllaði textinn upp, svo fólk gat lesið, og til að bæta þetta létum við Star Wars theme lagið ganga á meðan. Þetta var algjör snilld og mjög skemmtilegt.
Síðan hélt ég annan fyrirlestur í gær, en hann var töluvert alvarlegri, þar sem ég var að fjalla um grein sem kennarinn minn gaf út. Það gekk allt saman voða fínt, byrjaði reyndar á því að detta næstum því, en það var bara fyndið og þá fór líka stressið, fólk að hlæja í stað þess að vera graf alvarlegt
Núna er ég að vinna í ritgerð um efnafræði halastjarna, samsetning og myndun, sem ég á að skila á þriðjudaginn.
Svo er maður loksins kominn í smá páskafrí. Það verður reyndar lítið frí hjá mér, því þá verð ég að vinna í ritgerðinni úr sérverkefninu mínu. Úff bara brjálað að gera
Já árshátíðin í vinnunni var á laugardaginn, þá var sko dottið í það. Fyrst fór maður í fyrirpartý og þar var boðið upp á fullt af áfengi, síðan kom maður á hótel Nordica og þar fékk maður fordrykk, síðan var hvítvín og rauðvín með matnum. Hélt að væri eitt glas með hverjum rétti, fannst það líka mjög flott, en neinei þá voru þjónar alltaf að passa upp að maður kláraði ekki úr glasinu. Þannig að ég hef ekki hugmynd um hvað ég drakk mikið, en ótrulegt en satt þá fannst ekki vottur fyrir þynnku daginn eftir, sem er alltaf jákvætt. Það var líka altalað um það á mánudaginn hvað borðið okkar var vel í því og hávært miðað við hin tvö úr minni deild. Ég valdi greinilega rétta borðið, hin tvö hafa greinilega verið svona leiðinleg ;)